Starfslokaráðgjöf
Ef þú ert fulltrúi fyrirtækis sem ert að segja upp starfsfólki eða glímir við starfsmannaveltu er hér dæmi um það sem ég gæti aðstoðað þig við:
Taka starfslokaviðtöl við þá sem hætta eða hafa hætt á tilteknu tímabili, en líklega færðu hreinskilnari svör frá þeim sem hætta ef samtölin eru tekin af utanaðkomandi aðila.
Frá mér fengir þú samantekt skýringa sem einstaklingarnir gefa fyrir starfslokunum og einnig greiningu á mögulegum tækifærum og tillögur fyrir vinnustaðinn til að draga úr starfsmannaveltu.Aðstoð við þau sem þú segir upp störfum.
Aðstoða þau við gerð ferilskrár og/eða Linkedin-prófíls.
Coacha þau til að skoða hver gætu verið næstu skref og svo að ákveða og taka næstu skref í kjölfar uppsagnar.Coaching eða stjórnendaþjálfun fyrir þá stjórnendur sem er mest að missa frá sér starfsfólk, til að efla þá í sínu hlutverki sem stjórnendur.
Vanti þig annars konar stjórnunarráðgjöf, stjórnendaþjálfun eða kannski “Bakhjarl á bakvakt” þá hafðu endilega samband.
Hægt er að lesa nánar um feril minn hér á síðunni,
eða með því að skoða Linkedin-prófílinn minn.