Bakhjarl á bakvakt
- Stjórnandi til skrafs og ráðagerða, þér til stuðnings

1-1 lit.jpg

Vilt þú geta hringt í, eða tekið kaffispjall við reyndan stjórnanda - til að ræða um áskorun sem þú, þitt teymi eða vinnustaður stendur frammi fyrir?

Vilt þú geta fengið reyndan, óháðan, stjórnanda inn á fundi með framkvæmdastjórn eða stjórnendateyminu í heild, til að taka þátt í umræðum með glöggu gests auga?

-> Einhvern sem getur horft á hlutina utan frá,
komið með skoðun og tillögur
sem ekki eru litaðar af menningu vinnustaðarins?

Vilt þú geta fengið reyndan, óháðan, stjórnanda til að taka þátt í vinnudögum, undirbúningi stórra verkefna eða innleiðinga, endurskoðun verklags og mótun stefna?

Vilt þú geta fengið reyndan stjórnanda inn í tímabundnar afleysingar, til að manna stöðu á meðan ráðningarferli er í gangi eða stjórnandi fer í lengra leyfi.

Vilt þú geta fengið reyndan, óháðan stjórnanda í afmörkuð verkefni sem ná yfir tiltekinn tíma?

—-

Vilt þú að ég sendi á þig, eða stjórnendahópinn þinn, með reglubundnum hætti, fræðandi og gagnlegt efni um stjórnun og stjórnendahlutverkið?

  • Efni sem annað hvort tengist þeim áskorunum sem þú sérð á vinnustaðnum eða hafa komið illa út úr vinnustaðargreiningum.

  • Efni sem ég tel, út frá minni þekkingu og reynslu, að mikilvægt sé að stjórnendur séu meðvitaðir um á hverjum tíma.

  • Efni sem getur verið greinar, myndbönd, sjálfsmat, stutt verkefni sem vekja til umhugsunar og umræðu eða annað.