Ég fékk þann heiður í lok ágúst 2026 að opna nýjan vetur hjá Helgu og Örnu í hlaðvarpinu Tékk-inn. Fyrsti þáttur annarrar þáttaraðar. Rúmur klukkutími um það sem mér finnst skipta mestu máli þegar kemur að vinnu framtíðarinnar, með áherslu á sjálfsforystu og símenntun.
Þær sögðu eftir á að við hefðum auðveldlega getað talað í þrjá tíma. Ég er alveg sammála. Það segir kannski eitthvað um hversu brýn þessi málefni eru.
Hvers vegna sjálfsforysta?
Vinnumarkaðurinn breytist hratt. Störf breytast. Verkefni breytast. Kröfurnar breytast.
Við getum ekki beðið eftir því að einhver annar segi okkur hvert við eigum að stefna. Sjálfsforysta snýst um að taka ábyrgð á eigin vegferð. Að þekkja sjálfan sig, vita fyrir hvað maður stendur og taka ákvarðanir út frá því.
Grunnurinn er sjálfsþekking. Næst koma eigin gildi. Án þeirra er erfitt að leiða sjálfan sig, hvað þá aðra - og svo fylgja fleiri þættir, en módelið mitt um Sjálfsforystu byggir á 8 meginþáttum.
Símenntun er ekki lengur val
Hugmyndin um að klára nám og vera „búin“ að læra er úrelt. Við þurfum að læra alla starfsævina. Ekki bara sækja námskeið, heldur temja okkur annað viðhorf til lærdóms og þekkingar. Menntun og prófgráður úreldast nú hraðar en nokkru sinni fyrr.
Og hér tengist þetta tvennt. Það er sjálfsforysta að taka ábyrgð á eigin lærdómi.
Ekki sitja og bíða eftir því að vinnustaðurinn bjóði upp á eitthvað.
Hlustaðu á allt samtalið
Þátturinn heitir „#23 – Herdís Pála Pálsdóttir – Sjálfsforysta“ og er á Apple Podcasts og Spotify og mögulega víðar.
Takk, Helga og Arna, fyrir frábært spjall.
En hvað með þig? Hvað gerir þú til að leiða sjálfan þig áfram, í vinnu og lífi?
Ef þig vantar þjálfun í sjálfsforystu eða aðstoð við breytingar eða þróun á þínum starfsferli þá ekki hika við að hafa samband.
Ef þinn vinnustað vantar stjórnunarráðgjöf, stjórnendaþjálfun eða fræðslu fyrir starfsfólk þá ekki hika við að hafa samband.
Herdís Pála er reyndur og farsæll stjórnandi sem hefur sinnt ráðgjöf og þjálfun fyrir fjölmarga vinnustaði og stjórnendur.
Hér má lesa meira um mig, minn bakgrunn og mína þjónustu,
einnig þá fyrirlestra, námskeið og aðra þjónustu sem ég býð upp á fyrir ýmsa hópa, félög og fyrirtæki
sem og þjónustu sem ég býð einstaklingum og stjórnendum
Hér má lesa umsagnir og sjá dæmi um vinnustaði sem ég hef unnið fyrir.
Ég sendi ekki oft pósta, helst þegar ég vil deila einhverju góðu efni, láta vita af námskeiðum sem ég stend fyrir og fleira í þeim dúr.
Þegar þú skráir þig færðu sent ÓKEYPIS sjálfsmat sem hjálpar þér að finna út hverju þú ættir helst að forgangsraða í áframhaldandi vinnu þinni við að ná 360° árangri, í leik og starfi.
Módelið mitt fyrir 360° árangur
Þetta módel setti ég saman fyrir nokkrum árum,
sem stuðningsefni fyrir þá sem ég var að coacha eða markþjálfa.
Mínir viðskiptavinir eru helst stjórnendur sem vilja styrkja sig í því hlutverki á sama tíma og þeir vilja huga að eigin lífsgæðum.
Einnig fólk á krossgötum á sínum starfsferli.