Situr þú á kistu fullri af gulli?

Ég er að hlusta á gamla bók og í henni er dæmisaga sem mér finnst áhugaverð og kveikti hjá mér ýmsar hugrenningar.

—-

Sagan er svona:

Betlari situr í vegarkanti, þar sem hann hafði setið og betlað í 30 ár.
Einn daginn labbar þar maður og betlarinn réttir að honum gamla derhúfu sína og biður manninn um að gefa sér smá pening.

Maðurinn segist ekki eiga neitt að gefa honum.

Spyr svo hvað það sé sem betlarinn sitji á.
Ekkert sagði betlarinn, bara gamall kassi. Ég hef setið á honum svo lengi sem ég man.

Hefur þú einhvern tíma kíkt inn í kassann spyr maðurinn?
Nei svarar betlarinn, hver væri nú eiginlega tilgangurinn með því, þetta er bara tómur kassi.

Kíktu inn í kassann ítrekar maðurinn.
Betlaranum tekst að opna kassann og sér til furðu sér hann að kassinn er fullur af gulli!

—-

OK, ég veit, þetta er bara dæmisaga og meira að segja kannski frekar einföld dæmisaga, en hér koma vangaveltur sem kviknuðu með mér þegar ég heyrði söguna.

❓ Sitjum við sjálf á kistu fullri af gulli án þess að átta okkur á því?
❓ Er gullið í okkar kistu okkar eigin styrkleikar, hæfni, eiginleikar og geta?
❓ Er gullið í okkar kistu okkar eigin tengsl við aðra?
❓ Er gullið í okkar kistu okkar eigin geta til að aðlagast og þróast?
❓ Er gullið í okkar kistu okkar eigin fjölmörgu tækifæri til að læra, þroskast og vaxa, sem fagfólk og sem persónur?
❓ Erum við meðvituð um allt gullið í kistunni okkar?

Það er auðvelt að upplifa sig hjálparlausan og vanmáttugan ef við tökum okkur ekki tíma reglulega til að líta inn á við, skoða allt það sem við höfum yfir að ráða, okkar eigin styrkleika, hæfni og eiginleika, tengslin okkar og tækifæri, sem geta nýst á svo marga vegu.

Og ekki síður ef við tökum ekki reglulega tíma í að líta inn á við, átta okkur á hvað við viljum, sjálf fyrir okkur, til framtíðar litið, og skoða svo hvað við viljum læra og hvernig við viljum þróast til að koma okkur þangað sem við stefnum - hvort sem það er á vinnumarkaði framtíðarinnar eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.

Sýndu sjálfsforystu - kíktu í kistuna þína og nýttu allt gullið þitt!


Ef þinn vinnustað vantar stjórnunarráðgjöf, stjórnendaþjálfun eða fræðslu fyrir starfsfólk þá ekki hika við að hafa samband.

Herdís Pála er reyndur og farsæll stjórnandi sem hefur sinnt ráðgjöf og þjálfun fyrir fjölmarga vinnustaði og stjórnendur.


Hér má lesa meira um mig, minn bakgrunn og mína þjónustu,

  • einnig þá fyrirlestra, námskeið og aðra þjónustu sem ég býð upp á fyrir ýmsa hópa, félög og fyrirtæki

  • sem og þjónustu sem ég býð einstaklingum og stjórnendum

Hér má lesa umsagnir og sjá dæmi um vinnustaði sem ég hef unnið fyrir.

Ég sendi ekki oft pósta, helst þegar ég vil deila einhverju góðu efni, láta vita af námskeiðum sem ég stend fyrir og fleira í þeim dúr.

Þegar þú skráir þig færðu sent ÓKEYPIS sjálfsmat sem hjálpar þér að finna út hverju þú ættir helst að forgangsraða í áframhaldandi vinnu þinni við að ná 360° árangri, í leik og starfi.


Módelið mitt fyrir 360° árangur

Þetta módel setti ég saman fyrir nokkrum árum,
sem stuðningsefni fyrir þá sem ég var að coacha eða markþjálfa.

Mínir viðskiptavinir eru helst stjórnendur sem vilja styrkja sig í því hlutverki á sama tíma og þeir vilja huga að eigin lífsgæðum.
Einnig fólk á krossgötum á sínum starfsferli.


Next
Next

Eru aldursfordómar á íslenskum vinnumarkaði?