Ertu að spá í að fara að skipta um starf
- eða veistu ekki alveg hvað þú átt að gera eða hvert þú átt að fara?
Ertu að spá í hvort þú eigir að hætta í vinnunni þinni - eða langar þig kannski bara að vinnan þín næri þig aðeins betur?
Ertu enn að hugsa um hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór?
Ertu að velta fyrir þér hvernig þú getir hraðar klifrað upp hinn hefðbundna metorðastiga - eða ertu að hugsa um hvernig þú getir hætt að klifra, eða klifrað niður?
Ertu að hugsa um hvort það sé kominn tími til að hrista svolítið vel upp í hlutunum og fara að gera hlutina eitthvað allt öðruvísi?
Ertu að hugsa um að fara að vinna meira á eigin forsendum?
Ef þú svaraðir einhverri af þessum spurningum játandi þá get ég aðstoðað þig
- sendu mér línu á herdispala@herdispala.is og þá finnum við út hvort þig vantar coaching / markþjálfun eða annað.